Númer eitt sótthreinsivörurnar innihalda 75% etanól og 5% ísóprópanól (alls 80%) til sótthreinsunar. Einnig innihalda allar vörurnar sérvaldar 100% hreinar ilmkjarnaolíur frá Nikura, sem gefa vörunum einstakan og ljúfan ilm. Handsprittið er svo aukalega með hafþyrnisolíu, sem mýkir og græðir viðkvæma húð. Öll línan inniheldur íslenskt vatn og er framleidd af Foss Distillery.
Persónulegar sóttvarnir, handþvottur og handspritt, eru komnar til að vera og verða ávallt númer eitt.
Handspritt til framtíðar með 100% hreinum ilmkjarnaolíum ásamt Hafþyrnisolíu sem gefur mýkt og kemur í veg fyrir þurrar hendur. Sótthreinsandi, mýkjandi, nærandi. Því vildum við finna réttu innihaldsefnin og hanna spritt sem sótthreinsar vel en gefur líka mýkt og góðan ekta ilm. númer eitt er handspritt sem veitir góða vörn gegn sýkingum en vekur einnig vellíðan og góðar tilfinningar. – til framtíðar.
Við ákváðum að nota hafþyrnisolíu í vörurnar okkar til að vinna á móti þurrkandi áhrifum spritt notkunar. Hafþyrnisolían er algjör ofur olía með mikla virkni en er þekktust fyrir húðverndandi eiginleika sína. Hún gefur húðinni þinni mikla mýkt og góðan raka. Hafþyrnisolían hefur líka verið þekkt fyrir að vinna gegn ótímabærum hrukkum og minnka bólgur í húð sem geta verið fylgifiskur ýmissa húðsjúkdóma, s.s exems og psoriasis.
Við vildum gefa handsprittinu okkar sérstaka eiginleika. Fyrir utan að vera mýkjandi þá vildum við einnig að það hefði góðan ilm, sem situr ljúflega eftir á höndunum þínum. Ekki of mikill ilmur eða sterkur, heldur mjúkur og blíður. Til að skapa þau áhrif völdum við hreinar ilmkjarnaolíur. Annars vegar Lavender og hins vegar sítrónu. Hinn ljúfi lavender virkar róandi og slakandi og getur unnið gegn streitu og kvíða. Við mælum sérstaklega með lavender sprittinu síðdegis og á kvöldin.
Sólrík sítrónan er svo alveg einstaklega fersk, hressandi, upplífgandi og getur aukið einbeitingu og úthald. Við mælum með sítrónu sprittinu á morgnana og fram eftir degi.
Ilmkjarnaolíur og notkun þeirra hafa lengi fylgt mannkyninu og okkur finnst alveg einstaklega skemmtilegt að geta nýtt okkur áhrif þeirra í handsprittinu okkar.
Númer eitt sótthreinsispritt með einstökum ilmi af sítrónugrasi, sem virkar hressandi og upplífgandi.
Númer eitt sótthreinsispritt með einstökum ilmi af sítrónugrasi, sem virkar hressandi og upplífgandi.
Notkunarmöguleikar eru margir:
Númer eitt sótthreinsisprittið er líka einstaklega gott til að pússa gler og glugga
Athugið að sótthreinsisprittið inniheldur m.a. etanól sem er leysiefni og getur haft áhrif á yfirborð lakkaðra, málaðra og bónaðra flata. Gerið prufu áður en sótthreinsisprittið er notað.
Við notum 100% hreina sítrónugrass ilmkjarnaolíu frá Nikura í sprittið, sem skilur eftir sig ljúfan ilm, mildan en ekki of sterkan.
Sítrónugrass / Lemongrass ilmkjarnaolían er þekkt fyrir að bæta andlega líðan, og þykir frískandi og upplífgandi.
Ilmkjarnaolíur og notkun þeirra hafa lengi fylgt mannkyninu og okkur finnst alveg einstaklega skemmtilegt að geta nýtt okkur áhrif þeirra í sótthreinsisprittinu okkar.
Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar
Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.
Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum
skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.
Takk fyrir að skrá þig í heilsuklúbbinn.
Villa kom upp. Vinsamlega reyndu aftur.
Pistlar
Avita ehf