Kjarni

ORKA

JAFNVÆGI

VIÐHALD

Kaupa í áskrift

Fjölvítamín og steinefnablanda með auka magnesíum, omega 3 úr laxi og vinveittum meltingargerlum.

Kjarni hentar mjög vel fyrir þá sem vilja aukna orku og baktryggja sig með fjölvítamíni eða hafa engin sérstök heilsufarsvandamál.


Hvert einasta innihaldsefni í blöndunni er valið af kostgæfni og næringarefnin eru fengin beint úr náttúrunni: úr jurtum, ávöxtum og grænmeti sem eru rík af þeim. Þannig stuðlum við að hámarksnýtingu og höldum okkur fjarri óþarfa aukefnum.


Við mælum með að taka bætiefnin sem eru í boxinu með máltíð eða vatnsglasi.

30 BÆTIEFNASKAMMTAR


Eitt bréf inniheldur einn dagsskammt með 5 hylkjum.


  • 1x fjölvítamín- og steinefnablöndu á náttúrulegu formi (Food state).
  • 1 x laxaolía úr villtum laxi - Omega 3.
  • 1x magnesíum sítrat.
  • 1x vinveittir meltingargerlar með prebiotic trefjum.
  • 1 x D3 vítamín úr jurtaríkinu.

Mikil gæði | Minni sóun


  • Bætiefnaboxin eru endurvinnanleg og má flokka með lífrænum úrgangi. 




TAKTU BÆTIEFNAPRÓFIÐ

KJARNI er grunnblandan okkar sem hentar flestum til daglegrar inntöku.


• Blandan inniheldur fjölvítamín- og steinefnablöndu á fæðuformi (food state), D-vítamín, omega 3 úr laxi og vinveitta meltingargerla.


• KJARNI er öflugur bakhjarl heilsunnar sem sér til þess að kroppurinn fái öll helstu næringarefnin daglega til að blómstra


Orka

• B-vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri orkumyndun og vinna gegn þreytu.


Hár, húð og neglur

• B-vítamín, C-vítamín, joð og selen stuðla að eðlilegu viðhaldi hárs, húðar og nagla.


Ónæmiskerfi

• D-vítamín, C-vítamín, sínk, selen, B-12 og fólat stuðla að eðlilegri virkni ónæmiskerfisins.


Taugakerfi

• B-vítamín, C-vítamín, joð, kopar og magnesíum stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfis.


Hjarta

• B12, B6, fólat C- og A-vítamín stuðla að heilbrigði hjarta- og æðakerfis.


Blóðsykursjafnvægi

• Króm stuðlar að viðhaldi eðlilegs glúkósamagns í blóðinu.


Hvaða kostum er varan gædd?


B vítamín

Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.

B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.

D vítamín

Stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi

A vítamín

Stuðlar að eðlilegri starfsemi hjartans og er ómissandi fyrir eðlilega slímhúð, húð, sjón og ónæmiskerfi.

C vítamín

Stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.

Magnesíum

Kemur víða við í líkamanum og stuðlar m.a. eðlilegri virkni tauga og vöðva, dregur úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.


Joð

Stuðlar að eðlilegri starfsemi taugakerfis, eðlilegri húð og eðlilegri starfsemi skjaldkirtils.

Selen

Stuðlar að eðlilegu viðhaldi hárs og nagla auk þess að stuðla að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og skjaldkirtils.

Sink

Stuðlar m.a. að eðlilegri starfsemi ónæmiskerfis og eðlilegu viðhaldi beina, tanna, húðar, hárs, nagla og sjónar.

Kopar

Stuðlar m.a. að viðhaldi eðlilegra bandvefja, eðlilegri orkuvinnslu, eðlilegri starfsemi taugakerfis og ónæmiskerfis og eðlilegri starfsemi hárs og húðar.


Mangan

Er mikilvægt fyrir orkuvinnslu, bein og bandvefi.

K vítamín

Stuðlar að eðlilegri blóðstorknun og eðlilegu viðhaldi beina.

Hvaða box tikkar þú í?

Öll erum við ólík og þess vegna settum við saman 6 mismunandi pakka fyrir fólk með ólíkar þarfir.

Allt í einum pakka

Umhverfisvænna og hagkvæmara

KJARNI er grunnblandan okkar sem hentar flestum til daglegrar inntöku.

KJARNI er öflugur bakhjarl heilsunnar sem sér til þess að kroppurinn fái öll helstu næringarefnin daglega til að blómstra.

Heilsuklúbburinn

Fáðu sendan fróðleik um heilsu og heilbrigt líferni

frá færustu sérfræðingum okkar.

Þú samþykkir að þær upplýsingar sem þú veitir verði nýttar til að hafa samband við þig og senda þér fréttabréf sem og annað markaðs- og kynningarefni á vegum Númer eitt þegar við á.

Með því að smella hér að neðan samþykkir þú að við gætum unnið úr upplýsingum þínum.


Share by: