Gel eftir rakstur og vax með góðgerlanæringu | 30ml

ELLEN® GEL EFTIR RAKSTUR OG VAX MEÐ GÓÐGERLANÆRINGU | 50 ml

L-Argiplex fyrir karlmenn

®Ellen gel er hugsað til að nota eftir rakstur eða vax. Gelið er notað til að gefa raka og róa viðkvæma svæðið og skilur eftir sig slétta og mjúka húð.  Vegan og ofnæmisprófað.


Innihaldið er úr róandi höfrum sem draga úr roða og ertingu. Gelið inniheldur einnig allantóín sem hefur róandi og mýkjandi eiginleika sem hjálpa til við að draga úr rakvélabruna og inniheldur einnig góðgerlanæringu sem verndar húðina og varðveitir náttúrulegt

pH-gildi legganga. 


Helstu kostir við gel eftir rakstur og vax eru:


  • Rakagefur, mýkir og róar ertandi húð
  • Dregur úr rakvélabruna
  • Vegan & húðprófað


Innihald:

Vatn, hert etýlhexýlýlólifat, tríóleín, glýserín, Ricinus communis fræolía, pentýlenglýkól, karbómer, allantóín, kalíumsorbat, natríumlevúlínat, plöntusteról, Morinda citrifolia Callus culture lysate, akrýlat/C10–30 alkýlakrýlatkrossfjölliða, natríumhýdroxíð, maltódextrín, sítrónusýra, Avena sativa hafraútdráttur, natríumbensóat, levúlínsýra, tókóferól, jurtaolía.


Leiðbeiningar um notkun:

Berið á eftir rakstur eða vax til að róa húðina og draga úr hættu á rauðum blettum. Endurtaktu í nokkra daga til að viðhalda mjúkri áferð.


Notist innan 6 mánaða frá opnun.



Endurvinna svona:

1. Þegar varan er tóm skaltu losa lokið af flöskunni.

2. Endurvinna alla hluti sem plast

Netverslanir: Lyfja

03 Mar, 2023
Við þekkjum það örugglega flest allar að hafa glímt við einhverskonar vandamál þegar kemur að kynfærasvæðinu eins og leggangaþurrk eða þvagfærasýkingar. Ef að sýrustig í leggöngum er í jafnvægi þá erum við ekki að glíma við vandamál á borð við, óþægindi, kláða, ertingu eða jafnvel ólykt. En erum við að spá í hvaða vörur við erum að nota og hvaða vörur geta virkilega hjálpað okkur til að hafa þetta svæði í toppstandi? Ellen vörurnar eru sérstaklega hannaðar fyrir kynfærasvæði kvenna og innihalda vörurnar góðgerla (Probiotics) og góðgerlanæringu (Prebiotics). SKOÐA VÖRUR Hvað eru góðgerlar (Probiotics) og góðgerlanæring (Prebiotics)? Góðgerlar (Probiotics) eru samheiti yfir vinveittar bakteríur sem finnast aðallega í þörmunum en einnig á kynfærasvæði kvenna. Mjólkursýrugerlar eru ráðandi tegund í leggöngunum og taka þessir gerlar þátt í að viðhalda jafnvægi á sýrustigi legganganna og hefta þannig vöxt óæskilegra baktería. Orðið „probiotics“ (góðgerlar) þýðir „fyrir lífið“. Í Ellen vörulínunni eru tvær vörur sem innihalda góðgerla: ellen® - krem ellen® - tíðartappar Góðgerlanæring (prebiotics) eru efni sem skapa góðgerlunum hagstætt umhverfi. Góðgerlanæring getur til dæmis nært góðgerlana eða hindrað vöxt óæskilegra baktería til að þær æskilegu fái meira svigrúm til að fjölga sér. Í húðlínu Ellen eru þrjár vörur með góðgerlanæringu: ellen® - hreinsifroða ellen® - svitalyktareyðir ellen® - gel til að nota eftir rakstur og vax Þetta eru vörur sem eru ætlaðar fyrir ytri kynfærasvæðið eða nárasvæðið. Góðgerlanæringin í vörunum eflir góðgerlaflóru húðarinnar, dregur úr ertingu og styrkir varnarlag húðarinnar. Góðgerlanærandi efnin í vörunum frá Ellen eru sérvalin í samræmi við rannsóknir sem hafa sýnt fram á að þau hefti vöxt óæskilegra baktería. Þannig skapast ákjósanlegra umhverfi fyrir vinveittu bakteríurnar. HVAÐ ERU MJÓLKURSÝRUGERLAR? Mjólkursýrugerlar er samheiti yfir bakteríur sem mynda mjólkursýru. Þegar örverur brjóta niður sykur myndast mjólkursýra sem stuðlar að lágu sýrustigi í leggöngunum. Það eru til margar tegundir mjólkursýrugerla og þeir skiptast í mismunandi stofna með mismunandi virkni. Mjólkursýrugerlar í jógúrti eru til dæmis ekki þeir sömu og finnast í heilbrigðum leggöngum. Þess vegna er ekki ráðlegt að smyrja leggöngin með jógúrti í þeim tilgangi að bæta sýrustigið. EN VEISTU HVAÐ pH-GILDI LEGGANGA Á AÐ VERA? Sýrustig (PH-gildi) legganganna getur verið ólíkt milli einstaklinga og getur verið mismunandi eftir tímabilum og aldri. Almennt er þó æskilegt að það sé á milli 4,0 og 4,4. Ein varan í Ellen línunni er einmitt próf sem er mjög auðvelt í notkun og gerir þér kleift að mæla hvert sýrustig þitt í leggöngum er. pH-gildi sjálfspróf Ellen vörurnar fást í flestum apótekum og Fræinu Fjarðarkaup HUGSAÐU VEL UM ÞÍNA <3
02 Feb, 2023
HVAÐ ERU GÓÐGERLAR (PROBIOTICS)?  Góðgerlar eru lifandi örverur sem geta stuðlað að bættri heilsu. Góðgerlar innihalda yfirleitt bakteríur. Í mannslíkamanum finnast góðgerlar á húðinni, í þörmunum og á kynfærasvæði kvenna. Góðgerlablöndur geta innihaldið mismunandi bakteríustofna og þannig haft mörg og mismunandi heilsubætandi áhrif. Góðgerlarnir sem finnast í þörmunum eru til dæmis ekki þeir sömu og finnast á kynfærasvæði kvenna. Til að kynna megi vöru sem góðgerla er gerð krafa um að sýnt hafi verið fram á heilsubætandi áhrif gerlanna í rannsóknum og að sama magn gerla og notað var við rannsóknina sé til staðar í vörunni. GÓÐGERLAR FYRIR LEGGÖNG Í heilbrigðri gerlaflóru legganga eru mjólkursýrugerlar ráðandi tegund gerla, en þeir eru einnig kallaðir góðgerlar. Þeir hjálpa til við að halda sýrustigi legganganna lágu með því að framleiða mjólkursýru og viðhalda súru umhverfi. Við ákveðin skilyrði er hætt við að sýrustig legganganna fari úr jafnvægi. Það getur t.d. gerst meðan á blæðingum stendur, eftir sýklalyfjakúr, á meðgöngu og breytingaskeiði. Þegar sýrustigið í leggöngunum hækkar getur það valdið því að óæskilegar bakteríur valdi ertingu og óþægindum þar sem hærra sýrustig skapar slíkum bakteríum hagstæð skilyrði. Inntaka góðgerla getur hjálpað þér að viðhalda réttu sýrustigi á kynfærasvæðinu. GÓÐGERLAR FRÁ ELLEN Ellen býður upp á tvær góðgerlavörur: ellen®-túrtappa með góðgerlum og ellen®-góðgerlakrem. Báðar vörurnar innihalda góðgerlablönduna „Lacto Naturel (LN)“ frá Ellen sem samanstendur af sömu náttúrulegu mjólkursýrugerlum og eru til staðar í heilbrigðum leggöngum. „Lacto Naturel (LN®)“ er blanda þriggja stofna mjólkursýrugerla: • Lactobacillus gasseri LN40 • Lactobacillus fermentum LN99 • Lactobacillus rhamnosus LN113 HVAÐ ER GÓÐGERLANÆRING (PREBIOTICS)? Góðgerlanæring (prebiotics) eru efni sem skapa góðgerlunum hagstætt umhverfi. Góðgerlanæring getur til dæmis nært góðgerlana eða hindrað vöxt óæskilegra baktería, til að þær æskilegu fái meira svigrúm til að fjölga sér. GÓÐGERLANÆRING FYRIR VIÐKVÆM SVÆÐI Í húðlínu Ellen fyrir okkar viðkvæmasta svæði eru þrjár vörur með góðgerlanæringu: ellen® Prebiotic-hreinsifroða fyrir viðkvæm svæði, ellen® Prebiotic-svitalyktareyðir fyrir viðkvæm svæði og ellen® Prebiotic-gel til að nota eftir rakstur og vax. Þetta eru vörur sem eru ætlaðar fyrir ytri kynfærasvæðið eða nárasvæðið. Góðgerlanæringin í vörunum eflir góðgerlaflóru húðarinnar, dregur úr ertingu og styrkir varnarlag húðarinnar. Góðgerlanærandi efnin í vörunum frá Ellen eru sérvalin í samræmi við rannsóknir sem hafa sýnt fram á að þau hefti vöxt óæskilegra baktería. Þannig skapast ákjósanlegra umhverfi fyrir vinveittu bakteríurnar. HVAÐ ERU MJÓLKURSÝRUGERLAR? Mjólkursýrugerlar er samheiti yfir bakteríur sem mynda mjólkursýru. Þegar örverur brjóta niður sykur myndast mjólkursýra sem stuðlar að lágu sýrustigi í leggöngunum. Það eru til margar tegundir mjólkursýrugerla og þeir skiptast í mismunandi stofna með mismunandi virkni. Mjólkursýrugerlar í jógúrti eru til dæmis ekki þeir sömu og finnast í heilbrigðum leggöngum. Þess vegna er ekki ráðlegt að smyrja leggöngin með jógúrti í þeim tilgangi að bæta sýrustigið. Skoðaðu úrvalið af "Ellen" og sölustaði:
Mjólkursýrgerlar fyrir kynfærasvæðið þitt
03 Jan, 2023
- FYRIR KYNFÆRASVÆÐI KVENNA


Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar

Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.

Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum

skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.

Share by: