Mý frí

Mý frí | 100 ml

Mý frí flugnafælan heldur lúsmýinu í burtu !

– Förum mý frí í fríið !


Mý frí er blanda ilmkjarnaolía sem allar eiga það sameiginlegt að fæla burt óæskilega gesti, eins og lúsmý. Blandan er úthugsuð, með hámarks virkni í huga og sett saman af ilmolíufræðingi. Ilmkjarnaolíurnar vinna vel saman að markmiðinu, að fæla kvikindin frá, en bónusinn er að blandan ilmar einstaklega vel… fyrir okkur mannfólkið það er að segja.


Flugurnar hata Mý frí jafn mikið og við elskum það.


Mý frí er blanda 100% hreinna ilmkjarnaolía og er því mjög drjúg í notkun. Flugnafælan er laus við öll óæskileg auka og eiturefni og hentar því allri fjölskyldunni, líka börnunum.

Mý frí kemur í 100ml flösku.


Notist beint á húð blandað í grunnolíu, berist í gluggaföls og í gluggakistur. Berið einnig á útisvæði. Hægt að útbúa sprey og spreyja í kringum heita pottinn og útiaðstöðuna í garðinum og á svölunum. Frábært að nota í ilmolíulampana, bæði úti og inni.

Í stuttu máli sagt, notist alls staðar þar sem þið teljið hættu á að flugurnar nálgist ykkur !


Innihald:

100% hreinar ilmkjarnaolíur.

Lemon eucalyptus, lavender, rósmarín, lemongrass og basil.

Share by: