Númer eitt | Meltingarstyrkur

Meltingarstyrkur, til inntöku með sýklalyfjum

Meltingarstyrkur er bætiefni sem er ætlað þeim sem þurfa að taka sýklalyf og vilja koma í veg fyrir algeng óþægindi og aukaverkanir af völdum þeirra. Sýklalyf geta valdið niðurgangi, meltingartruflunum, krömpum og sveppasýkingum svo eitthvað sé nefnt. Þau eru auðvitað bráðnauðsynleg og geta bjargað mannslífum en staðreyndin er sú að þau drepa ekki bara slæmu bakteríusýkingarnar, heldur líka góðu gerlaflóruna sem að meltingin þarf á að halda til að starfa rétt. því koma þessar óþægilegu aukaverkanir oft fram.


Meltingarstyrkur inniheldur einstaka góðgerla sem geta bætt upp þetta tap æskilegrar gerlaflóru í meltingunni.


Bætiefnið inniheldur gerilinn Lactobacillus Rhamnosus, sem rannsóknir hafa sýnt að virkar vel til inntöku með sýklalyfjum. Ástæðan er sú að þessir góðgerlar, umfram aðra, hafa mótstöðu gegn bakteríudrepandi áhrifum sýklalyfjanna og komast því lifandi niður í meltingarveginn, án þess að lyfin hafi mikil áhrif á þá. Margar aðrar tegundir góðgerla eru aftur á móti mjög viðkvæmar fyrir sýklalyfjunum og ná ekki að lifa af til að gera gagn í meltingarfærunum.

Eitt hylki á dag á meðan einstaklingur tekur sýklalyf. Þeir sem eru mjög viðkvæmir í meltingarfærum mega gjarnan taka fleiri hylki. Einnig er gott að halda áfram inntöku í nokkra daga eftir að lyfjakúr lýkur.


Börn frá 12 ára aldri mega taka sama skammt og fullorðnir.


Börn frá 1 – 11 ára mega taka bætiefnið og það má opna hylkin og blanda innihaldinu saman við vökva. Yngri börnin þurfa minni skammt. 1/4 til ½ hylki, fer eftir aldri. Rannsóknir hafa sýnt að Lactobacillus Rhamnosus gerillinn virkar einnig mjög vel gegn meltingaróþægindum hjá börnum á sýklalyfjum. Gerlarnir þola að vera teknir inn um leið og sýklalyfið, á sama tíma dags. Það er þó talið jákvætt að taka Meltingarstyrk á kvöldin, fyrir svefn. Það er ekki nauðsyn að taka bætiefnið með mat.

Hver poki inniheldur 14 hylki.


Hvert hylki inniheldur 10 billjón CFU (Colony forming units) – 10 billjónir virkra gerla sem halda virkni og fjölda fullkomlega í tvö ár frá framleiðsludegi.


Gerlarnir eru gall og sýruþolnir, sem þýðir að þeir komast niður í smáþarmana án þess að týna tölunni vegna áhrifa magasýru og galls.


Innihald:


Lactobacillus Rhamnosus 10 billjón CFU, umfangsauki (örkristallaður sellulósi), kekkjavarnarefni (magnesíumsterat)


  •  Varan þarf EKKI að vera í kæli.
  •  Meltingarstyrkur er Vegan.
  •  Bætiefnið er laust við: Dýraafurðir, egg, glúten, ger, hnetur, laktósa, litarefni, mjólkurafurðir, rotvarnarefni, soja og sykur.

Umbúðirnar eru sértaklega valdar með tilliti til umhverfisverndar og valdi minna kolefnisfótspori. Pokarnir eru léttir og taka lítið pláss í flutningi. Þeir eru úr pappír og eru húðaðir að innan. Í Bretlandi eru sorphreinsistöðvar sem endurvinna svona poka, en á fundi okkar með Sorpu kom fram að hér á landi er því miður ekki möguleiki til þess ennþá. Það mun hins vegar koma að því.



Framleiðsla – Vottanir:


Meltingarstyrkur er framleiddur fyrir Númer eitt í Bretlandi, samkvæmt öllum helstu gæðastöðlum.



Vottanir fyrirtækisins eru meðal annarra:


GMP (Good Manufacturing Process)


FSSC2200 (Food Safety System Certification)


ISO22000 (Food Safety Management System)


Framleiðandi hefur fengið Ethical Award í Bretlandi




Pistlar

21 Jan, 2024
Lípósómal frá Nordaid
14 Jul, 2023
Membrasin Moisture fæðubótarefni
12 Apr, 2023
Ertu kona, 45 ára eða eldri, finnur e.t.v. fyrir áhrifum hormónabreytinga og vilt tryggja líkamanum öll helstu næringarefnin alla daga? 
Skoða meira

Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar

Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.

Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum

skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.

Share by: