B12 | Munnúði | 67 dagskammtar

Membrasin vitality bætiefni

B12 | 1200 mcg | 67 dagskammtar

30 ml


Bragðgott, einfalt og þægilegt.

Með frískandi mintubragði.

Munnúðinn inniheldur virkasta form B12 vítamíns |Methylcobalamin


  • Vinnur gegn þreytu og sleni
  • Stuðlar að betri andlegri líðan
  • Vinnur gegn minnistruflunum
  • Styrkir ónæmiskerfið


B12 skortur er geysilega algengur og getur haft í för með sér margvísleg alvarleg heilsufarsvandamál.

B12-vítamín er vatnsleysanlegt, sem þýðir að það safnast ekki upp í líkamanum og af því leiðir að nauðsyn er að taka það inn reglulega.

Það gefur betri árangur að taka inn vítamín í munnúðaformi, heldur en ef vítamínið þarf að ferðast í gegnum meltingarveginn, þar sem ákveðnir þættir geta komið í veg fyrir að B12-vítamín nýtist sem skyldi.


Fyrir hverja er B12 munnúðinn:

Alla sem eru þreyttir og orkulausir

Þá sem þjást af streitu

Alla sem eru Vegan eða grænmetisætur

Þá sem nýta illa B12 úr fæðu og/eða töflum

Eldra fólk, sem þarf sérstaklega að huga að B12 inntöku

Þá sem taka magalyf, sem geta komið í veg fyrir upptöku á B12

Alla sem vilja tryggja að þau vítamín sem notuð eru, nýtist líkamanum sem skyldi


Munnúðinn nýtist líkamanum allt að 50% betur en hefðbundnar töflur og hylki, þar sem vítamínið frásogast beint í gegnum slímhúð munnhols og út í blóðrásina.


Innihaldsefni:

B12 Methylcobalamin – 1200 mcg í þremur úðum.


Að auki:

Hreinsað vatn, stevía, sítrónusýra, kalíumsorbat, náttúrulegt mentol og minta.


Ráðlagður dagskammtur:

Þrír úðar á dag gefa 1200 mcg af B12-vítamíni.


  • Mikil gæði og fyrsta flokks sérvalið hráefni
  • Nútíma loftlausar umbúðir sem tryggja ferskleika og endingu
  • GMP vottað
  • Inniheldur hvorki sykur né gervisykur


Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina. Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt.


Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.


Athugið:

Fæðubótarefni kemur aldrei í staðinn fyrir fjölbreytt og gott mataræði. Varist að nota ekki meira en ráðlagður dagskammtur segir til. Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.


Geymist þar sem börn ná ekki til

Sölustaðir

Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar

Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.

Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum

skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.

Share by: