Kyrrð

SLÖKUN

JAFNVÆGI

KYRRÐ

Kaupa í áskrift

B-vítamínblanda með C-vítamíni, inósitóli og kólíni, magnesíum, D-vítamín og jurtablanda með schisandra og sítrónumelissu.

Kyrrð hentar mjög vel fyrir fólk sem glímir við svefnvandamál eða orkuleysi. Kyrrð er frábært bætiefni fyrir þá sem eru undir miklu álagi hvort sem það er andlegt og/eða líkamlegt. 


Hvert einasta innihaldsefni í blöndunni er valið af kostgæfni og næringarefnin eru fengin beint úr náttúrunni: úr jurtum, ávöxtum og grænmeti sem eru rík af þeim. Þannig stuðlum við að hámarksnýtingu og höldum okkur fjarri óþarfa aukefnum.


Við mælum með að taka bætiefnin með máltíð eða vatnsglasi.

30 BÆTIEFNASKAMMTAR


Eitt bréf inniheldur einn dagsskammt með 5 hylkjum og töflum.


  • 2 x blanda af  schisandra (ekstrakt)og sítrónumelissu (ekstrakt)
  • 1x magnesíum sítrat
  • 1x B vítamín blanda með C vítamíni á náttúrulegu formi (Food state)
  • 1x D3 vítamín úr jurtaríkinu


Öll bætiefnin eru vegan

Mikil gæði | Minni sóun


  • Bætiefnaboxin eru endurvinnanleg og má flokka með lífrænum úrgangi. 




TAKTU BÆTIEFNAPRÓFIÐ

Hvernig er svefninn? Er erfitt að slaka á? Ertu undir álagi sem truflar hvíldina?


  • Taugakerfi líkamans reiðir sig á fjölda næringaefna til að geta starfað í jafnvægi. 

  • KYRRÐ inniheldur B-vítamín, C-vítamín, Magnesíum og D-vítamín sem koma þar sterklega við sögu og eru öll ómissandi fyrir orkuvinnslu og eðlilega virkni tauga og vöðva, bæði hvað varðar spennu og slökun.

  • KYRRÐ inniheldur einnig jurtirnar schisandra og sítrónumelissu sem eru taldar hafa slakandi áhrif.

  • Sniðugt er að skipta dagsskammtinum í KYRRÐ þannig að taka B-vítamínin og D-vítamínið fyrri part dags en Magnesíum og jurtablönduna að kvöldi. Það er þó einnig í góðu lagi að taka allan skammtinn á sama tíma

Orka

• B-vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri orkumyndun og vinna gegn þreytu.


Taugakerfi

• B-vítamín, C-vítamín og magnesíum stuðla að eðlilegri starfsemi taugakerfis.


Jafnvægi og streita

• Rannsóknir á schisandra benda til þess að jurtin stuðli að auknu jafnvægi taugakerfis og vinni gegn streitu.


Slökun og svefn

• Sítrónumelissa er talin stuðla að slökun og betri svefni.

Hvaða kostum er varan gædd?


B vítamín

Öflug blanda B-vítamína stuðlar m.a. að eðlilegri orkumyndun, dregur úr þreytu og stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-, ónæmis- og hormónakerfis.

B12, fólat og B6 stuðla enn fremur að eðlilegum efnaskiptum hvað varðar hómósystein en það er amínósýra sem þarf að huga sérstaklega að með hækkandi aldri. Of hátt magn hómósýsteins í blóðinu hefur verið tengt við aukna hættu á hjartasjúkdómum, heilablóðfalli og heilabilun en B12, fólat og B6 stuðla að því að halda magninu innan eðlilegra marka.

D vítamín

Stuðlar m.a. að eðlilegri úrvinnslu kalks og viðhaldi beina og tanna , styrkir ónæmiskerfið og stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi

C vítamín

Stuðlar m.a. að eðlilegri myndum kollagens, styrkir ónæmiskerfið og taugakerfið, ver frumur gegn oxunarálagi, eykur upptöku járns og dregur úr þreytu.

Magnesíum

Kemur víða við í líkamanum og stuðlar m.a. eðlilegri virkni tauga og vöðva, dregur úr þreytu og lúa og stuðlar að eðlilegu viðhaldi beina og tanna.


Schisandra

Er talin adaptógenísk jurt sem stuðlar að jafnvægi og vinnur gegn streitu.

Sítrónumelissa

Er talin hafa slakandi áhrif og geta bætt svefninn.

Hvaða box tikkar þú í?

Öll erum við ólík og þess vegna settum við saman 6 mismunandi pakka fyrir fólk með ólíkar þarfir.

Allt í einum pakka

Bæði umhverfisvænna og hagkvæmara

Í okkar hraða samfélagi veitir mörgum ekki af því að vinna gegn streitu og hvílast betur.  "KYRRÐ" inniheldur blöndu næringarefna sem stuðla að því að viðhalda jafnvægi taugakerfis.

Heilsuklúbburinn

Fáðu sendan fróðleik um heilsu og heilbrigt líferni

frá færustu sérfræðingum okkar.

Þú samþykkir að þær upplýsingar sem þú veitir verði nýttar til að hafa samband við þig og senda þér fréttabréf sem og annað markaðs- og kynningarefni á vegum Númer eitt þegar við á.

Með því að smella hér að neðan samþykkir þú að við gætum unnið úr upplýsingum þínum.


Share by: