®Ellen tíðartappinn með góðgerlum/Probiotics er einstakur tíðartappi sem inniheldur sömu náttúrulegu mjólkursýrubakteríurnar og finnast í heilbrigðum leggöngum.
Hver tíðartappi inniheldur 100 milljónir góðgerla sem bæta og styrkja eðlilega bakteríuflóru og viðhalda réttu pH- gildi í leggöngunum.
Ellen tíðartapparnir henta vel fyrir allar konur sem vilja vernda og viðhalda jafnvægi í leggöngum. Ellen tíðartapparnir hafa reynst vel fyrir konur sem hafa glímt við vandamál vegna kláða, ólyktar og ertingar.
Tíðartappinn er með sléttu og fíngerðu yfirborðslagi og er ekki klórbleiktur.
Svona virkar þetta:
Þegar tíðartappinn er vættur af tíðavökva losna bakteríurnar í leggöngunum. Tíðartapparnir hjálpa til við að viðhalda eðlilegu pH gildi og halda því í jafnvægi, þannig eiga skaðlegar og óæskilegar bakteríur erfiðara með að setja að og valda óþægindum.
Kostir við Ellen tíðartappana:
Innihald:
Ellen® tíðartappinn með góðgerlum/Probiotics inniheldur blönduna Lacto Naturel (LN)® sem er blanda af þremur bætibakteríustofnum: (L. rhamnosus LN113, L. gasseri LN40 og L. fermentum LN99). Tíðartappinn samanstendur af viskósu og strengnum úr 100% bómull. Yfirborðslagið er gert úr pólýester/pólýetýleni.
Notkunarleiðbeiningar:
Ellen® tíðartappann ætti að nota alveg eins og venjulegan tíðartappa. Mikilvægt er að nægilegur raki komist í tappann til þess að hann nái fullri virkni og mjólkursýrugerlarnir nái að streyma úr tappanum í leggöngin.
Mælt er með að nota a.m.k. þrjá Ellen tíðartappa á dag meðan á blæðingum stendur til að viðhalda eðlilegri gerlaflóru í leggöngum.
Aldrei skal nota sama tíðartappa í meira en átta klukkustundir.
®Ellen tíðartappi super er notaður við miklum blæðingum og dregur í sig 12-15 g af vökva.
Geymið tíðartappana í þurrpokanum á þurrum og köldum stað í málmdósinni.
Endurvinna svona:
1. Endurvinna tíðartappaþynnuna sem plast
2. Endurvinna notendaleiðbeiningarnar sem pappír
3. Endurvinna þurrkpokana sem eldfima
4. Endurvinna dósina sem málm
5. Endurvinna lokið sem plast
Netverslanir: Lyfja
Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar
Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.
Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum
skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.
Takk fyrir að skrá þig í heilsuklúbbinn.
Villa kom upp. Vinsamlega reyndu aftur.
Avita ehf