Eftir Inga Kristjáns
•
23 Mar, 2021
Inga Kristjáns næringarþerapisti fjallar um Max Hydrate freyðitöflurnar: "Það vill enginn vera þreyttur þurr og svimandi! Hins vegar er það leynt vandamál, ekki svo lítið eða óalgengt, að fólk þjáist af vökvaójafnvægi og skorti á steinefnum og söltum. Einkennin geta verið margvísleg og sömuleiðis geta ástæðurnar verið fjölmargar,“ segir Inga og leggur áherslu á orð sín og bætir síðan við: „Þreyta, svimi, sinadráttur og krampar, minnistruflanir, húðþurrkur, mikið orkuleysi og tíðar klósettferðir (svona eins og líkaminn nái ekki að halda í vökvann sem drukkinn er). Þetta kannast margir við.“ Hverjir eru helst útsettir fyrir að vanta steinefni og sölt? „Mjög margir. Íþróttafólk, dugnaðarforkar í ræktinni, hlauparar, golfarar, göngufólk, þeir sem stunda jóga, sund og sömuleiðis pottafólk. Einnig eldri borgarar, konur á breytingaskeiði sem svitna mikið, þeir sem eru á ketó mataræði (ketó-flensan) og fleiri. Einnig má nefna þá sem drekka mikið kaffi en einn Max Hydrate Energy getur svo sannarlega komið í stað kaffibollans (eða gosdrykkjarins)! Trace Minerals Max Hydrate freyðitöflurnar innihalda allar mikilvæg steinefnasölt. Þær koma í þremur útgáfum. Max Hydrate Endurance - blanda steinefnasalta Max Hydrate Energy - steinefnasölt auk koffíns úr grænu te Max Hydrate Immunity - steinefnasölt auk C vítamíns fyrir öflugra ónæmiskerfi Meira um Trace Minerals vörurnar hér: