Omega + D3 | 40 dagskammtar
30 ml
Innihaldsefni:
Omega-3 fiskiolíuþykkni (EPAX6000), MCT-kókosolía, alfatókóferól (andoxunarefni), sítrónugrasbragðefni, D3-vítamín.
Upptaka:
Úðinn frá Nordaid auðveldar líkamanum upptöku á Omega-3 og D3-vítamíni þar sem vítamínin berast beint frá slímhúðinni í munninum út í blóðrásina.
Kostir:
D-vítamín er fituleysanlegt vítamín og öflugt andoxunarefni.
D-vítamín stuðlar að viðhaldi beina ásamt eðlilegri starfsemi vöðva og ónæmiskerfis.
EPA- og DHA-fitusýrur stuðla að eðlilegri starfsemi hjartans.
DHA hjálpar til við að viðhalda eðlilegri heilastarfsemi og eðlilegri sjón.
Jákvæð áhrif á sjón og heilastarfsemi fást við neyslu á 250 mg af DHA á dag og á starfsemi hjartans við neyslu á 250 mg af EPA og DHA á dag.
Hentar bæði alætum og grænmetisætum.
Inniheldur ekki:
Laktósa, sykur, alkóhól og glúten.
Ráðlagður dagskammtur:
5 úðar á dag gefa 585 mg af fiskiolíu, þar af 337 mg af Omega-3 fitusýrum, þar af 168 mg af EPA (eikósapentensýru) og 112 mg af DHA (dókósahexensýru), 100 µg af D3-vítamíni (4000 IU) (2000%*)
Rannsóknir hafa sýnt að munnúði er það form með bestu upptöku í mannslíkamanum.
Þegar munnúðinn er notaður í fyrsta skipti er gott að ýta nokkrum sinnum á úðahausinn til að fá vökvann upp í rörið. Hristið glasið fyrir notkun. Úðið undir tunguna eða innan á kinnina. Munið að setja hettuna á úðahausinn og geymið flöskuna þannig hún standi lóðrétt.
Ef munnúðinn er ekki notaður í langan tíma, þá getur hann stíflast. Ef það gerist þá þarf að hreinsa úðahausinn með heitu vatni.
Athugið:
Fæðubótarefni kemur aldrei í staðinn fyrir fjölbreytt og gott mataræði. Varist að nota ekki meira en ráðlagður dagskammtur segir til. Geymist við stofuhita og ekki í sólarljósi.
Geymist þar sem börn ná ekki til
Skráðu þig í heilsuklúbbinn okkar
Af og til munum við senda þér heilsutengdan fróðleik og upplýsingar um vörurnar okkar.
Hugsanlega munum við einnig leita til þín og biðja þig að taka þátt í örstuttum
skemmtilegum könnunum, sem tengjast heilsu og vellíðan.
Takk fyrir að skrá þig í heilsuklúbbinn.
Villa kom upp. Vinsamlega reyndu aftur.